|
Gönguferðir og hjólaferðir
Það er mikil ásókn í göngu og hjólaferðirnar okkar hjá Eldhúsferðum. Því biðjum við áhugasama að snúa sér til söludeildar [email protected] til þess að sjá hvað er í boði og taka frá pláss.
Útivistarhópur eldhúsferða
Þeir sem hafa áhuga á því að komast í göngu eða hjólaferð en eru ekki í göngu eða hjólahóp geta látið setja sig á póstlista. Sendið okkur línu á [email protected] og við munum hafa samband og láta vita hvaða dagsetningar eru í boði varðandi göngu og hjólaferðir.
|
Myndir úr göngu og hjólaferðum
|
Gönguferðir við allra hæfi
Bókaðu gönguhópinn þinn í ferð með okkur hjá Eldhúsferðum. Við hjá Eldhúsferðum erum með sérþjónustu fyrir göngu- og útivistarhópa sem hafa áhuga á að ferðast erlendis, við getum sérsniðið ferðirnar að öllum getustigum og aldri og fundið tímann sem hentar hópnum best. Til þess að fá frekari upplýsingar sendu okkur póst á [email protected]
|
Hjóla og njóta við Gardavatn
"Hjóla og njóta" ferðin okkar við Gardavatnið er sívinsæl. Hún er blanda af léttri hreyfingu í mjög fallegu umhverfi, mat, vínsmökkun, menningu og krydduð með fjöri. Hjóla- og njótaferðin er til í nokkrum útgáfum og hana er auðvelt að aðlaga að hvaða hóp sem er. Til þess að fá frekari upplýsingar sendu okkur póst á [email protected]
|
Eldhúsferðir - CucinaTravel ehf
|